Katrín baular
Allt mitt
06.07.2008 19:29:35 / katosk

Flutt

Já ég held ég sé bara flutt hingað http://www.katosk.com svo þarf ég bara að vera duglegri að skrifa og setja inn myndir ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.07.2008 09:20:37 / katosk

Til hammó með ammó

Elsku Hilmir og Lilja Sif til hamingju með afmælin í dag :)  Hilmir hlýtur nú að fá almennilega veislu í dag búandi í USA en Lilja mín ég skal halda uppi stuðinu heima hjá þér í kvöld, viltu að ég komi með flugelda og alles?? hehehehe

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.07.2008 14:51:17 / katosk

Sumarfrí??

Við skulum bara segja að ég hafi verið í sumarfrí þar sem ég hef ekkert haft að segja hérna upp á síðkastið.  Lífið gengur bara sinn vanagang, brjálað að gera í vinnunni og svo bara nenni ég einfaldlega ekki að fara í tölvuna á kvöldin þannig að ég fer frekar og geri eitthvað annað.  Þarf að vísu að kveikja á tölvunni fyrir hallærislega fjarnámið sem ég er í til að læra á myndavélina mína og kostaði bunch miðað við gæði verð ég að segja en ég ætla nú samt ekki alveg að drepa þetta hérna áður en ég klára þetta.  Nú svo langar mig svo svakalega að taka mótorhjólapróf en hef ekki drullað mér í það að panta mér tíma í kennslu og að lokum er ég að berjast við að reyna að læra á gítarinn minn en hef enga þolinmæði í þetta svona sjálf heima þannig að ég ætti kannski að skrá mig bara á námskeið.  Það er bara þannig með mig að ég fer ekki á námskeið nema að kunna smá og núna er ég t.d. búin að læra að keyra mótorhjól í fyrsta gír en hef mig ekki í að panta tíma fyrr en ég hef lært að skipta upp hehehe æ ég veit ég er spes ;)

Hey svo bara hafði ég alveg fullt að segja, hver veit nema að ég láti heyrast meira í mér þennan mánuðinn en þann síðasta ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun


Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Heimsóknir
Í dag:  7  Alls: 145004
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 6 júlí