Katrín baular
Allt mitt
14.04.2008 22:38:01 / katosk

Þoli ekki dónalegt fólk

Ég er búin að lenda ótrúlega eitthvað mikið í dónalegu fólki um helgina og í dag :(  þetta byrjaði á laugardagskvöldið þegar ég lenti næstum því í rifrildi við konu sem ég ætla nú ekkert að fara nánar út í en þegar ég stóð upp og sagðist ætla að yfirgefa borðið áður en ég færi að rífast við hana þá var ég búin að heyra að ég væri heimsk, veruleikafyrrt og dónaleg og mér fannst ég ekki vera neitt af þessu og fór næstum því að gráta hehe Nú svo fórum við Heiða á Nasa og þar ætlaði Heiða að taka í hendina á manni og segja honum að hún hefði mikið álit á honum og hann neitaði að heilsa henni :/ kommon. Svo í dag fór ég á skyndibitastað og pantaði fyrir tvo og sagði svo að þetta yrði greitt í sitthvoru lagi og þegar ég kom í lúguna sagði afgreiðsludaman "Af hverju léstu mig ekki vita að þú ætlaðir að borga í sitthvoru lagi áður en þú pantaðir?"  Ég var alveg orðlaus og sagði svo við hana að það stæði hvergi á skilti að maður ætti að biðja um það áður en maður pantaði og að ég hefði látið hana vita eftir að ég pantaði og ef hún væri ósátt við það þá hefði hún getað sagt mér það í kurteisi að næst þegar ég kæmi þá væri það nú betra að láta vita áður en pöntun á sér stað, ekki það að mig langar ekkert svakalega að fara þangað aftur :(  úff ég varð aðeins að pústa
Heiða skrifaði
já shitt.... ég var einmitt að spá í að ég þyrfti að skrifa um þetta einhverstaðar... mér finnst þetta fáránlegt allt saman... og ég með þér í öll skiptin hehe kannski er þetta einhvað með mig og þig saman... nei það getur ekki verið við erum svoooo skemmtilegar hahaha. En úff maðurinn féll í áliti... enda ósmart af svona public týpu að vera augaölvaður á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur finnst mér.
Kátrín skrifaði
Ég er samt ekki alveg sammála með það, mér finnst allt í lagi að hann skuli hafa verið ölvaður, hann gat bara verið kurteis :)
Heiða skrifaði
Mér finnst ekki passa fyrir alþingismann að vera hauslaus á skemmtistað. Alltí lagi að vera úti á lífinu en þegar þú ert svona áberandi í þjóðfélaginu þá þarftu aðeins að pæla.....
Olga Björt skrifaði
ókei...nú er ég orðin mjöööög forvitin um það hvaða Alþingismaður þetta var. :) Tek undir með Heiðu að ef um er að ræða Alþingismann, þá finnst mér sæma honum betur að passa ölvun sína. Hann var kosinn á þing til að hafa áhrif á þjóðarbúið. Ef þetta verið einhver listamaður eða viðskiptajöfur, þá er það algjörlega hans mál hvernig hann drekkur opinberlega. ;) En það breytir því ekki að það er til ótrúlega mikið af dónalegu fólki. Maður verður stundum kjaftstopp.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Heimsóknir
Í dag:  20  Alls: 145017
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 6 júlí