Ég er sjúklega pirruð núna og ekki bætti úr því að ég var búin að skrifa hérna langan pistil um pirringinn minn og hann hvarf, dísuss hvað ég þarf að nota sumarið í að koma katosk.com í gagnið!
Ekki það að ég sé vön að blogga um mín vandamál þá ætla ég nú bara samt að gera það núna þar sem ég er mjög svo pirruð út í einn lækni hérna á okkar blessaða landi.
Þannig er mál með vexti að ég er mjög blóð og járnlítil kona og má þar af leiðandi ekki fá hana Rósu frænku í heimsókn if you know what I mean

Nema hvað að ég er búin að fara til kvensjúkdómalæknis sem mér var bent á að væri klár í að koma svona veseniskonum eins og mér í lag. Nú hún vill bara að ég fái mér hormónalykkju sem satt best að segja ég tími alls ekki að fá mér, hef þannig lagað ekkert á móti henni en vil bara ekki kaupa hana nema að ég ætli mér ekki að eignast börn næstu 2-3 árin sem er n.b. vonandi ekki að fara að gerast hjá mér hehe

Nú ég bjalla í konuna í gær þar sem ég er búin að vera í vandræðum og spyr hvort það sé nú ekki eitthvað annað sem ég get gert mér til bjargar og ég fæ bara NEI þú verður bara að fá þessa lykkju og spyr svo hvort ég sé í sambandi sem ég svara neitandi og þá segir hún nú þá ertu hvort sem er ekekrt að fara að verða ólétt næstu 2 árin, þú þarft að kynnast manni og vera með honum í 1-2 ár áður en þú ferð að hugsa um barneignir. Ég sagði nú svona í gamni á móti "ég gæti nú alveg kynnst manni á morgun" og þá bara fékk ég skammir frá kellu, þú ert nú ekki að fara að verða ólétt eftir mann sem þú hefur þekkt í tvo daga, þú þarft að kynnast manninum og ferð ekkert að eignast barn með manni nema hann sé góður og bla bla bla ég var svo gáttuð að ég man ekki einu sinni allt sem hún sagði (er ég 18 ára?) en HALLÓ....hvað í andsk... kemur henni við hvort og hvernig og hvenær ég ætla að eignast börn eða mann?? Ég gæti verið lesbísk, ætlaði í tæknifjógun (er það ekki annars leyfilegt single konum núna?) nú eða ætlað að eignast barn eftir one night stand (ekki mjög líklegt samt) æjj þið skiljið, henni kemur þetta ekki rassgatans við!!
Er ekki nóg að manni sé "strítt" yfir að vera orðinn svona gamall og eiga hvorki mann né barn að einhver læknir úti í bæ fari líka að skipta sér af því?? Hún veit ekki rassgat hvað ég er búin að ganga í gegnum eða hvað ég ætla mér að gera í lífinu arrrrg ég er svo reið að ég gæti farið og lamið hana!! Eitt get ég samt sagt ykkur að hún er einum kúnnanum færri núna og ég mun ALDREI stíga fæti inn til hennar aftur hvað þá mæla með henni!!
Úff núna er ég sko búin að pústa sorry að þið þurfið að lesa þetta hehe æ þið þurfið þess ekki neitt

Farin að syngja uppi á Akranesi